Ánauðugir sjómenn á íslenskum skipum

Björn Valur Gíslason, varþingmaður VG, segir að brögð séu að því að sjómenn af erlendum uppruna njóti ekki sömu kjara og réttinda og aðrir sjómenn. Hann tók málið upp utan dagskrár á Alþingi í gær og kallaði umboðsmenn erlendra verkamanna þrælahaldara samtímans. Björn Valur segir í samtali við dv.is að hann hafi fengið ábendingar um að umboðsmenn erlendra verkamanna hafi komið að skipshlið og boðið starfskrafta. Dæmi væru þess að þeir hefðu verið ráðnir á föstum launum en ekki hlut og nytu engra réttinda.

Björn Valur telur að freistingin að ráða menn með áðurgreindum hætti fari vaxandi með minnkandi aflaheimildum. Hann vill ekki nefna einstök dæmi en kveðst hafa fengið fleiri en eina ábendingu rétt eins og aðrir þingmenn. Hann segist hafa fengið sterk viðbrögð við ummælum sínum á þingi, bæði þeirra sem kunni fleiri dæmi um áðurgreind ráðningarkjör og meðferð á erlendum sjómönnum en einnig hinna sem krefjist þess að hann nefni dæmi máli sínu til staðfestingar.

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, sagði  í umræðum á Alþingi í gær að það væri miður ef sú væri raunin að menn nytu ekki allra réttinda, en benti á hlutverk verkalýðsfélaga í þessu efni.

Nýjustu fréttir

Sjálfstæðisflokkurinn – Utankjörfundar atkvæðagreiðsla í prófkjöri hafin
Sandra skoraði sjö mörk í frábærum sigri Íslands
Óhagsætt sjólag þegar nær dregur helgi
Hvað kostuðu þjóðlendukröfur ríkisins í Eyjum?
Bæjarráð ræddi stöðu dýpkunarmála í Landeyjahöfn
Birting á námsframvindu barna í lesskilningi, stærðfræði og lesfimi
Undankeppni Stíls á morgun
Versnandi afkoma bæjarins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.