Sindri Viðarsson leikmaður ársins

Lokahóf KFS var haldið hátíðlegt síðasta laugardag í Glerskálanum í eyjum. Ekki var nægjanlega góð mæting, eins og sagt er, fámennt en góðmennt. Byrjað var á Íþróttamóti í Týsheimilinu, svo var púðrað sig til og mættu margir til Hjalta og Trausta í fyrirpartý. Svo á leiðinni í Glerskálan þar sem ljúffengur matur var borðaður við bestu list. Hjalti Læknir hélt ræðuna og ræddi um framtíð KFS ásamt því að verðlauna leikmann ársins.

Sindri Viðars var leikmaður ársins 2007, fékk meðaleinkunina 9,11. Næstir á eftir voru Anton Rafn, Magnús Steindórss og Stefán Þ. með 9,00.
Steingrímur var markakóngur með 8 mörk í 8 leikjum.
Andton Rafn var efnilegasti leikmaðurinn og sýndi mestar framfarir.
Andri Eyvinds og Sæþór léku flesta deildarleikina eða 12 af 14. Alls spilaði 44 einstaklingar deildarleik fyrir KFS í sumar.

Eftir það var komið að video-inu, og þar sem þetta var nú 10 ára afmælisútgáfan. Bauð Óðinn okkur öllum í bíóið í eyjum til að horfa á meistaraverkið. Farið var með rútu í bíóið, horft á myndbandið sem vakti mikla lukku og svo aftur niðrí Glerskála. Þar var skemmt sér þangað til liðið týndist uppí Höll.

http://kfs.eyjar.is

 

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.