Margrét Lára bætti markametið í 4:2-sigri Vals gegn KR

Valur sigraði KR, 4:2, í Landsbankadeild kvenna í dag og er Valur nánast búið að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Valur er með 43 stig en KR 40 en markatala Vals er mun betri. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvívegis í leiknum og hefur hún skorað 35 mörk í deildinni og bætti hún þar með markametið sem hún setti sjálf í fyrra. Aðrir leikir kvöldsins eru: Fjölnir – Breiðablik, Fylkir – Keflavík og Þór/KA – ÍR. Fylgst var með gangi mála í leik KR og Vals í textalýsingu á mbl.is.

90. mín. Egill Már Markússon dómari blæs í flautu sína. Leiknum er lokið og Valur er með 43 stig en KR 40.

90 2:4 Margrét Lára Viðarsdóttir skorar fjórða mark Vals eftir skyndisókn. Þetta er 35. mark hennar í Landsbankadeildinni og bætti hún markametið sem hún setti í fyrra þar sem hún skoraði 34 mörk.

74. mín. Hólmfríður Magnúsdóttir skallar yfir mark Vals eftir hornspyrnu KR-inga.

72. mín. Guðný Björk Óðinsdóttir leikmaður Vals náði ekki að skalla að marki KR af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Margréti Láru Viðarsdóttur.

66. mín. 2:3 Hrefna Jóhannesdóttir var ekki lengi að laga stöðuna fyrir KR en hún stakk sér inn fyrir flata vörn Vals og skoraði annað mark sitt í leiknum.

65. mín. 1:3 Varamaðurinn Dagný Brynjarsdóttir skorar fyrir Val eftir laglega sókn Vals. Dagný kom inná sem varamaður skömmu áður.

57. mín. Hólmfríður Magnúsdóttir á gott skot framhjá úr opnu færi. KR er mun sterkara þessa stundina.

56. mín. Edda Garðarsdóttir tók aukaspyrnu af löngu færi og þrumaði boltanum í þverslá Valsmarksins. Fjóla Dröfn Friðriksdóttir fékk síðan boltann í vítateignum en skot hennar fór yfir.

Síðari hálfleikur er byrjaður. KR er með vindinn í bakið en það er mjög hvasst en þurrt í Frostaskjólinu.

Fyrri hálfleik er lokið, staðan er 2:1-fyrir Val gegn KR.

42. mín. Valsliðið fékk tvö fín færi á sömu mínútunni. Málfríður Erna Sigurðardóttir þrumaði boltanum í þverslánna og skömmu síðar komst Margrét Lára í opið færi en Íris markvörður KR varði vel.

38. mín. Hólmfríður Magnúsdóttir leikmaður KR kemst í gott færi en skot hennar fer yfir markið. Ásta Árnadóttir leikmaður Vals fékk gult spjald skömmu síðar.

33. mín. 1:2 Margrét Lára Viðarsdóttir úr Val skorar eftir langt útspark markvarðar. Margrét slapp inn fyrir flata vörn KR og átti ekki í erfiðleikum með að skora framhjá Írisi markverði.

27. mín. Hólmfríður Magnúsdóttir úr KR fær gult spjald fyrir brot.

26. mín. 1:1 Katrín Jónsdóttir jafnar fyrir Val. Rakel Logadóttir fékk sendingu upp hægri kantinn og sendi hún boltann út í vítateiginn þar sem Katrín var mætt og þrumaði hún boltanum í markið.

24. mín. Agnes Þóra Árnadóttir leikmaður KR varði skot á marklínu en það var Margrét Lára Viðarsdóttir sem átti skotið.

21. mín. Rakel Logadóttir fær fínt færi en nær ekki skoti að marki eftir að Íris markvörður KR hafði misst af boltanum eftir úthlaup í vítateignum.

13. mín. Rakel Logadóttir komst ein inn fyrir vörn KR en Íris Dögg Gunnarsdóttir markvörður KR varði vel.

7. mín. 1:0 Hrefna Jóhannesdóttir skorar fyrir KR eftir snarpa sókn. Boltinn barst til Hrefnu þar sem hún lá í grasinu við vítapunktinn í vítateig Vals og náði hún að skjóta boltanum í autt markið – sitjandi.

4. mín. Olga Færseth skalla yfir markið af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Hólmfríði Magnúsdóttur.

Byrjunarlið KR: Íris Dögg Gunnarsdóttir – Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir, Olga Færseth, Edda Garðarsdóttir, Ólöf Gerður Jónsdóttir Ísberg, Hólmfríður Magnúsdóttir, Alicia Maxine Wilson, Fjóla Dröfn Friðriksdóttir, Agnes Þóra Árnadóttir, Hrefna Huld Jóhannesdóttir, Embla Sigríður Grétarsdóttir.

Byrjunarlið Vals: Guðbjörg Gunnarsdóttir, Sif Atladóttir, Pála Marie Einarsdóttir, Málfríður Erna Sigurðardóttir, Ásta Árnadóttir, Vanja Stefanovic, Rakel Logadóttir, Katrín Jónsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir.

Nýjustu fréttir

Þetta er mjög einfalt og enginn ómöguleiki
 Ég skal syngja fyrir þig í Salnum
Hinrik Hugi framlengir við ÍBV
Díana Dögg öflug í sigri Blomberg-Lippe
Snjóþungt í Eyjum
Skvísudagur á Bókasafninu um helgina
Fleiri erlendir starfsmenn læra íslensku í Eyjum
Taktu þátt í að móta menningarstefnu Vestmannaeyja

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.