Árni M. Mathiesen situr fyrir svörum

www.eyjar.net ætla að gefa lesendum sínum kost á því í vetur að senda inn spurningar í gegnum www.eyjar.net/spjall á kjörna stjórnmálamenn kjördæmisins.

Fyrstur til að sitja fyrir svörum er Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra.

Til að senda inn spurningu verður að skrá sig inn á spjallborð www.eyjar.net/spjall og hægt er að senda inn spurningu í flokknum Pólitík – Spurðu ráðherrann / þingmanninn. Munum við velja nokkrar spurningar og senda þær á Árna sem ætlar að svara þeim.
 
Það er markmið www.eyjar.net að skapa lifandi umræðu um menn og málefni og vonandi náum við með þessari leið að koma skoðunum okkar á framfæri.

Ef að við spyrjum ekki spurninga sem tengjast Vestmannaeyjum þá gerir það enginn.

Undir spurninguna verður að setja fullt nafn notenda.

Nýjustu fréttir

Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Glódís Dúna valin í lokahóp U17 fyrir undankeppni EM
Konunglegt drama í Sagnheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.