1 deild: Glæsilegur sigur á Stjörnunni!

Stjörnumenn komust þá yfir með marki úr vítaspyrnu á 59. mínútu en síðan hófst líklegast einhver ótrúlegasti kafli í sögu íslensks knattspyrnuleiks. Jeffsie jafnaði metin á 63. mínútu, Stjarnan komst aftur yfir á 64. mínútu en Atli Heimis jafnaði aftur fyrir Eyjamenn og það á 65. mínútu! Fjögur á sex mínútum og þrjú mörk á þremur mínútum! Það hlýtur að vera Íslandsmet ef ekki heimsmet. Það var svo Jeffsie sem koma Eyjamönnum yfir á 77. mínútu og það fór svo vel á því að leikmaðurinn sem var í leikmannakynningu hér á síðunni í dag, Arnór Eyvar Ólafsson, skoraði fjórða og síðasta mark leiksins. Ekki oft sem Arnór skorar og menn segja líklegast núna með hann eins og þegar Gary Neville skorar: ,,hann af öllum mönnum.” en frábært hjá drengnum og strákunum sem sýndu með þessum úrslitum að þeir eru síður en svo hættir í baráttunni.

Eyjapeyjar komust með þessu uppí fjórða sæti deildarinnar með 26 stig, aðeins einu stigi á eftir Fjölni sem sigraði Leikni á útivelli í kvöld 0-2. Fjölnir er því með 27 stig en á þó leik til góða.

Til hamingju með glæsilegan sigur strákar ! 

Nýjustu fréttir

Látinna minnst í Landakirkju
Við höfum þurft að ryðja brautina
Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.