Vegagerðin og Siglingastofnun hafa lagt fram frummatsskýrslu fyrir byggingu Landeyjahafnar, vegtengingar að höfninni og efnistöku vegna framkvæmda á Seljalandsheiði og úr Markarfljótsaurum. Framkvæmdaraðilar eru Vegagerðin og Siglingastofnun og undirbúningur miðast við að framkvæmdir geti hafist árið 2008 og að höfnin verði tekin í notkun árið 2010.