Aðfaranótt sunnudags var lögregla kölluð að Hótel Örk vegna ölvaðs manns sem hafði brotið upp hurð í kjallara hótelsins. Maðurinn var handtekinn og færður í fangageymslu.
Við yfirheyrslu viðurkenndi maðurinn verknaðinn og var mjög miður sín yfir að hafa brotið hurðina. Hann fór að yfirheyrslu lokinni og ræddi við starfsmenn hótelsins og samdi um bætur.