Þannig er því komið að ekki munu fleiri myndir frá Sigmund birtast í Mogganum enda búið að segja honum upp eftir um 40 ára starf. Það er fjallað um þetta á eyjafrettir.is og getið þið lesið þá frétt hér. Ég skil vel að það þurfi að taka laglega til í þessu dagblaða rugli sem hefur verið í gangi hér á landi undanfarin ár og sérstaklega núna þegar allir auðmennirnir okkar sem áttu blöðin eru fluttir blásnauðir til London. Það er ekki búið að vera gefa út nema fjögur dagblöð hér undanfarið og við ekki nema 300.000 hræður. Hvað eru t.d. mörg tímarit gefin hér út, þegar ég var peyji þá var það Æskan og Andrés Önd blöðin.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.