Smíðandi ehf var með lægsta tilboðið í smíði fjölnota íþróttahúss en tilboðin voru opnuð nú í morgun. Smíðandi skilaði inn tveimur tilboðum, öðru upp á rúmar 373 milljónir sem er nánast eins og kostnaðaráætlun en hitt tilboð fyritækisins hljóðaði upp á 340 milljónir, sem er 91,1% af kostnaðaráætlun. Hæsta tilboðið átti Fashion Group/Nova Buildings, 476 milljónir rúmar en tvö önnur tilboð voru á svipuðu reki. Alls bárust fimmtán tilboð í verkið en nú verður farið í að meta tilboðin þar sem um mismunandi útfærslur er að ræða. Tilboðin má sjá hér að neðan.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst