Nú er einmuna sumarblíða í Vestmannaeyjum en Eyjamenn og gestir þeirra hafa notið veðurblíðunnar utandyra í dag. Öskufjúk gerði Eyjamönnum lífið leitt í gær með tilheyrandi roki en í dag er allt annað uppi á teningnum. Samkvæmt mælingum Veðurstofu Íslands fór hitinn upp í tæpar 17 gráður í Vestmannaeyjabæ í dag en hitastigið hefur sjálfsagt verið talsvert hærra í miðbænum, þar sem skjólsælla er.