Tveir Eyjamenn eru meðal þeirra 51 umsækjenda sem hafa lagt inn umsókn um stöðu bæjarstjóra Grindavíkur, þeir Andrés Sigurvinsson og Þorsteinn Gunnarsson. Andrés hefur verið verkefnastjóri hjá Árborg undanfarið en áður var hann framkvæmdastjóri hjá Vestmannaeyjabæ. Þorsteinn er upplýsinga- og þróunarfulltrúi í Grindavík en vann m.a. áður hjá Stöð 2 og á vikublaðinu Fréttum í Vestmannaeyjum.