Sigur í kaflaskiptum leik
ÍBV hafði betur gegn Val í dag á Hásteinsvellinum en lokatölur urðu 3:1. Leikurinn var afar kaflaskiptur, Valsmenn voru sterkari í fyrri hálfleik og voru verðskuldað yfir 0:1 í hálfleik. En Eyjamenn sýndu sparihliðarnar í seinni hálfleik, skoruðu tvö gullfalleg mörk, fyrst varamaðurinn Damien Justin Warlen þegar hann þrumaði boltanum inn af 25 metra færi og svo markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson sem lagði boltann glæsilega upp undir samskeytin og nýtti sér vindinn glæsilega. Tryggvi bætti svo við þriðja markinu úr vítaspyrnu og innsiglaði sigurinn.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.