Mikið verður lagt í eftirlit lögreglunnar um komandi Verslunarmannahelgi. Ljóst er af bókunum til Vestmanneyja að þar verður mjög fjölmennt en búast má við mikilli umferð um allt Suðurland. Yfirmenn löggæslu á Selfossi, á Hvolsvelli og í Vestmanneyjum hittust á fundi í morgun þar sem farið var yfir skipulag löggæslunnar.