12 ára gamall með nýtt þjóðhátíðarlag
Ágúst Emil Grétarsson er 12 ára gamall Eyjapeyi með mikla hæfileika. Þrátt fyrir ungan aldur, er Ágúst Emil búinn að semja nýtt þjóðhátíðarlag sem heitir Í Dalnum með þér. Ágúst lét sér ekki nægja að semja lag og texta, heldur fékk hann Eyjahljómsveitina Tríkot til að spila lagið í upptökum í gær hjá Árna Óla í Island Studios. Lagið var svo frumflutt á Gufunni, þjóðhátíðarútvarpi Eyjamanna í dag en lagið má heyra hér að neðan. Um er að ræða hið fínasta þjóðhátíðarlag sem mun án efa vera kyrjað í Herjólfsdal um helgina.

Nýjustu fréttir

„Einsi Kaldi lokar þegar ég hef ekki metnað í eldhúsinu lengur“
Frá Heimaeyjargosinu til kostulegra sagna af Vellinum
Nýr sæstrengur en bræðslan gengur fyrir olíu
Herjólfur fellir niður ferðir
Frá Vestmannaeyjum í norska skóla 
Kyrrðarbæn í dag
Þór flutti sjúkling til Landeyjahafnar á hæsta forgangi
Setja frest á viðræður um sorpþjónustu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.