Í dag klukkan 18.00 hefst tjöldun hvítu tjalda þjóðhátíðarinnar en þá finna heimamenn tjaldinu sínu stað. Gera á tilraun í ár með að jafna leikinn þannig að allir fari af stað á sama tíma, nema hvað starfsmenn þjóðhátíðarnefndar fá að velja sér pláss á undan öðrum og eru það laun þeirra. Oftast nær er talsverður slagur um að finna besta plássið en aldrei hefur verið hægt að standa við tímasetningar fyrr en nú. Eða hvað?