Tökur kvikmyndarinnar Djúpið eftir Baltasar Kormák hófust í Vestmannaeyjum í dag. Kvikmyndin er byggð á atburðum í tengslum við Helliseyjarslysið 11. mars 1984. Þá fórust fjórir menn en einn komst lífst af með því að synda í land eftir að vélbáturinn Hellisey VE 503 sökk um fimm kílómetra austur af Heimaey. Kvikmyndin er byggð á samnefndu leikriti Jóns Atla Jónassonar.