Stormur Breki, báturinn sem nota á í kvikmyndinni Djúpið, sem nú er verið að taka upp í Eyjum, var upphaflega smíðaður fyrir útgerðarmenn í Vestmannaeyjum. Kom hann nýr til heimahafnar í Vestmannaeyjum í janúar 1958. Hann hét Reynir VE 15 og hélt hann nafninu lengst af. Fréttir ræddu við Engilbert Sigurðsson, vélstjóra og síðar vörubílstjóra og Friðrik Ásmundsson fyrrum skipstjóra og skólastjóra Stýrimannsskólans sem báðir voru á Reyni.