ÍBV er með fjóra leikmenn sem æfa með liðinu á reynslu í æfingaferð liðsins á Spáni en þetta staðfesti Tryggvi Guðmundsson leikmaður liðsins í viðtali við Valtý Björn Valtýsson í útvarpþættinum Mín skoðun á X977 rétt í þessu. Tryggvi sagði þar að um væri að ræða fjóra leikmenn um tvítugt sem koma frá Crewe Alexandra, Newcastle United og Tel Aviv í Ísrael.