Siglingastofnun hefur ekki tekið ákvörðun um opnun Landeyjahafnar en í gær var tilkynnt að höfnin yrði lokuð fram á skírdag. Dýpkunarskipið Skandia hefur verið við dælingu í höfninni síðastliðinn sólarhring með hléum en aðstæður eru erfiðar þar sem ölduhæð er yfir tveimur metrum.