Hippabandið ætlar að halda tónleika næstkomandi laugardagskvöld 30. apríl í Vinaminni kaffihús. Tónleikarnir byrja stundvíslega klukkan 21 og verða til 23 en aðgangur er ókeypis. „Við ætlum að halda ótrauð áfram og undirbúa Hippahátíð sem verður um miðjan oktober. Sjáumst með blóm í hári, með ást og friði í sál og sinni í Vinaminni,“ segir í fréttatilkynningu frá Hippabandinu.