Innanfélagsmót Sjóstangaveiðifélags Vestmannaeyja verður haldið nú um helgina, nánar tiltekið laugardaginn 30. apríl, en ekki 30. maí eins og misritaðist í Fréttum í gær. Mótssetningin verður á Lundanum í kvöld, föstudag kl. 20. 30. Í fyrramálið verður síðan haldið til veiða í kringum Eyjar. Veðurspá er ágæt fyrir morgundaginn og ekki ætti að væsa um keppendur.