KFS varð í dag fyrst liða til að tryggja sér sæti í 2. umferð í Valitorbikarkeppninni en í dag unnu Eyjamenn Álftanes 2:0. Leikurinn átti upphaflega að fara fram á morgun, 1. maí en vegna vallarskilyrða á Bessastaðavelli, var leikurinn færður inn í Kórinn og fram um einn dag. Þetta var jafnframt fyrsti leikur tímabilsins í deild og bikar og ánægjulegt að Eyjamenn opni tímabilið með sigri.