Undirritaður vill taka skýrt fram að grasrótarsamtökin Stígamót vinna bæði þarft og gott starf. Það er ekki síst fyrir tilstilli Stígamóta að varpað hefur verið ljósi á hversu stórt, algengt og alvarlegt mein kynferðislegt ofbeldi er í íslensku samfélagi. Starf þeirra verðskuldar virðingu en er ekki hafið yfir gagnrýni. Ummæli mín á borgarafundi í Vestmannaeyjum varðandi aðkomu Stígamóta að Þjóðhátíð, eiga rætur í aðkomu samtakanna að Þjóðhátíð fyrir nokkru síðan. Í kjölfar þeirrar hátíðar var gefið í skyn af samtökunum að hátíðin væri vandamálið. Sem er fráleitt.