Í dag, 1. maí er Knattspyrnufélagið Týr 90 ára. Af þessu tilefni settu nokkrir Týrarar merki félagsins utan á klúbbhús ÍBV. Aðalstjórn ÍBV þakkar fyrir gjöfina og mun í framhaldi funda um málið. Aðalstjórn ÍBV minnir á í þessari umræðu að félagið er runnið undan rifjum tveggja félaga og munum við ekki mismuna þeim á nokkurn hátt í þessum efnum.