Nú rétt í þessu voru síðustu tónarnir slegnir í Herjólfsdal og um leið lauk Þjóðhátíð Vestmannaeyja 2011. Stormurinn sem átti að gera þjóðhátíðargestum lífið leitt í nótt lét ekki sjá sig þannig að líklega var besta veðrið yfir helgina einmitt í nótt. Nú undir morgun var nánast logn þegar þaulsetnustu gestir hátíðarinnar fóru að huga að heimferð en aðeins hefur bætt í vind síðan þá.