Það hefur varla farið framhjá landsmönnum að B-lið ÍBV í handbolta spilar á morgun, laugardag, gegn HK2 í Eimskipsbikarnum. Leikurinn hefst klukkan 13:00 en nú þegar er búið að selja um 400 miða á leikinn og stefnir allt í að það verði uppselt á leikinn. Til að mæta eftirspurn, hafa liðsmenn B-liðsins ákveðið að hafa opna æfingu í kvöld klukkan 18:30.