Í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi var sagt frá fólskulegu broti Davíðs Þórs Óskarssonar, leikmanns ÍBV í handbolta en svo virðist sem hann hafi gefið leikmanni Selfyssinga á lúðurinn í leik liðanna um síðustu helgi. Brotið fór framhjá dómarapari leiksins, og reyndar mörgum öðrum en brotið lítur ekki vel út á myndbandsupptöku, sem má sjá hér að neðan.