Ég skelliti mér á Eyjakvöld með Obbósííí og félögum í Ráðhúskaffi í Þorlákshöfn. Ég var að fara í þriðja skipti og vissi hverju ég gekk að, eða það hélt ég. Þegar ég mætti á svæðið vopnaður myndavél þá stóðu flestir af hljómsveitarmeðlimum í andyrinu og var mér heilsað og ég faðmaður. Þegar ég gekk inn í salinn sem var fullur af brosandi fólki þá vissi ég strax að þetta myndi verða eitthvað sérstakt, Þorlákshafnarbúar kunna að skemmta sér.