Frá og með deginum í dag verður hægt að bóka í ferðir Herjólfs yfir jól og áramót eða á tímabilinu 21. desember til 31. janúar. Samkvæmt tilkynningu frá Eimskip verður þó ekki hægt að opna fyrir sölu í allar ferðir, þar sem óvissa ríkir með Landeyjahöfn. Þess vegna er aðeins búið að opnað fyrir „öruggar“ ferðir núna sem hægt er að flytja frá Landeyjahöfn til Þorlákshafnar ef með þarf. Aðrar ferðir verða opnaðar um leið og útséð er með að siglingar til Landeyjahafnar eru mögulegar eins og við vonum að verði raunin. Áætlun skipsins yfir jól og áramót má sjá hér að neðan.