Eyruglu var bjargað í gær undan hrafnahópi og komið á Náttúrugripasafnið við Heiðarveg. Uglan var ágætlega á sig komin og fékk frelsi að nýju síðdegis í dag. Talið er að uglan hafi haft viðdvöl í Eyjum í nokkrar vikur ásamt öðrum stærri fugli sömu tegundar. Eyruglan var varla komin úr búrinu þegar hrafnarnir skoðuðu hana betur en uglan smeygði sér fimlega undan.