Eyjamenn leika mikilvægan leik í 1. deildinni í dag þegar liðið tekur á móti Stjörnunni úr Garðabæ. Eyjamenn hafa tapað síðustu þremur leikjum af fjórum í deild og bikar, og vilja sjálfsagt rétta úr kútnum. ÍBV er sem stendur í 2. sæti, tveimur stigum á eftir ÍR, sem lagði Víkinga að velli í gærkvöldi. Stjarnan er svo í þriðja sæti með 11 stig en Víkingar eru í því fjórða með 10 stig.