Hjónin Geir Reynisson og Sigþóra Guðmundsdóttir fengu góða hugmynd á dögunum. Þau vilja fá fjölskyldur í Eyjum til að sameinast í sleðaferð í Herjólfsdal, þar sem brekkan verður lýst upp og boðið verður upp á létt lög í Dalnum. Geir og Sigþóra gerðu gott betur en að fá hugmyndina, því þau eru búinn að hrinda henni í framkvæmd og er fjölskyldusleðaferðin næstkomandi föstudag, milli 16 og fram eftir kvöldi. Ekki er úr vegi að taka með sér hitabrúsa og heitt kakó til að ylja sér í kuldanum.