Aganefnd Handknattleikssambands Íslands (HSÍ) tók fyrir á fundi sínum erindi frá stjórn HSÍ vegna atviks sem átti sér stað í leik ÍBV og Selfoss í 1. deild karla. Af myndbandsupptöku virtist Davíð Þór Óskarsson slá viljandi til leikmanns Selfoss en dómarapar leiksins sá ekki leikbrotið. Alla jafna er ekki dæmt eftir myndbandsupptökum eftir að leik lýkur en stjórn HSÍ ákvað engu að síður að senda inn erindi vegna atviksins til aganefndar. Aganefnd hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að ekki er hægt að dæma eftir myndbandsupptökunni og var málinu vísað frá. Úrskurðinn má lesa í heild sinni hér að neðan.