Á fundi bæjarráðs í vikunni lá fyrir samkomulag milli ÍBV íþróttafélags og Vestmannaeyjabæjar um 15 milljón króna styrk frá bænum til byggingar á áhorfendastúku við Hásteinsvöll. Einnig lá fyrir samkomulag við Golfklúbb Vestmannaeyja, þar sem fram kom að bærinn veitir Golfklúbbnum 10 milljón króna aukastyrk til endurfjármögnunar klúbbsins.