Vinsælasti tónlistarmaður landsins í dag, Mugison, hélt tónleika í Höllinni í gær. Eyjamenn létu ekki á sér standa og voru tæplega 800 manns á tónleikunum, stútfullt út að dyrum og var orðið nánast fullt þegar enn var hálftími í tónleikana. Meistari Mugison stóð undir væntingum, var einn með kassagítarinn en náði að heilla gesti tónleikana upp úr skónum með góðum flutningi og einlægri framkomu. Á tónleikunum tilkynnti Mugison svo að hann myndi spila á Þjóðhátíðinni 2012.