Þriðjudaginn 7. feb. kl. 20:00, halda Vinstrihreyfingin- grænt framboð og Samfylkingin sameiginlegan opinn fund í Alþýðuhúsinu. Á fundinn mæta frá Vinstri grænum: Ráðherrarnir Steingrímur J. Sigfússon og Katrín Jakobsdóttir og þingmaðurinn Björn Valur Gíslason. Frá Samfylkingunni: Þingmennirnir Róbert Marshall og Björgvin G. Sigurðsson. Landsmálin almennt verða til umræðu, ekki síst sjávarútvegsmál, atvinnumál, byggðamál, ESB mál og fleira.