Kvennalið ÍBV á fyrir höndum afar mikilvægan leik á morgun, þriðjudag klukkan 18, þegar liðið tekur á móti FH í undanúrslitum Eimskipsbikarkeppninnar. Liðin hafa einu sinni mæst í vetur en þá unnu Eyjastúlkur stórsigur, 24:10 en staðan í hálfleik var 11:6. FH er í neðsta sæti deildarinnar með þrjú stig eftir 10 leiki en ÍBV er í 4. sæti með 12 stig eftir jafn marga leiki. Samkvæmt bókinni ætti ÍBV því að eiga auðveldan leik fyrir höndum en bikar er alltaf bikar og þar getur allt gerst.