Um síðustu helgina voru þeir hjá Laurel & Hardy að brjóta niður Smurstöðina við Græðisbraut. Þetta hús átti sögu en kannski ekki mjög merka sögu. Byggð til að þjóna miklum fjölda vörubíla sem hér voru, trogbílarnir voru reyndar lengst af á síðustu öld miklu fleiri en minni einkabílar hér í Eyjum.
Eftir að Bílastöðin hætti starfsemi hefur þetta svæði verið fremur illa nýtt. Smurstöðin víkur nú fyrir nýju húsi sem mun hýsa Húsasmiðjuna.