Um helgina var lögreglunni í Vestmannaeyjum tilkynnt að uppstoppuðum lunda hafi verið stolið af skemmtistaðnum Conero. Vitað var hver var þar að verki og fóru lögreglumenn á stúfana og höfðu uppi á manninum á skemmtistaðnum Lundanum, með lundann. Lundinn, það er að segja sá uppstoppaði, hafði eitthvað skemmst í flutningunum en maðurinn kvaðst tilbúinn að bæta tjónið. Þetta má lesa í dagbók lögreglunnar hér að neðan.