Einleikurinn Afinn verður sýndur í Höllinni á morgun, laugardag. Það er enginn annar en gamanleikarinn góðkunni, Sigurður Sigurjónsson, sem fer með aðalhlutverkið í verkinu en leikstjórn var í höndum Bjarna Hauks Þórssonar, sem einnig samdi verkið í samstarfi við Sigurð. Þeir félagar hafa áður unnið saman, bæði að Hellisbúanum og einleiknum Pabbinn en ákváðu að víxla hlutverkum í Afanum.