Eftir að að hafa hlustað á erindi þitt í Valhöll s.l. haust, þar sem þú fórst yfir breytingartillögur ríkisstjórnarinnar um fiskveiðistjórn, þá komst ég að því að hagsmunir meirihluta íbúa sjávarbyggða eru langt í frá ofarlega í ykkar huga. Það sem ég tel að þið séuð að gera með því að halda uppi stanslausum hatursáróðri gagnvart útgerðarmönnum er að halda uppi hatursfylgi við ríkisstjórnina, sérstaklega hjá almenningi á höfuðborgarsvæðinu. Ég byggi þessa skoðun mína á því að þú svaraðir ekki spurningum mínum sem sneru að hagsmunum atvinnu sjómanna og fiskverkafólks í stærri sjávarbyggðunum, hvorki í Valhöll né í tölvupósti.