Vinsælasta hljómsveit landsins síðustu 20 árin, Sálin hans Jóns míns, kemur til Eyja á laugardag og skemmtir í Höllinni í kvöld, laugardag. Þeir félagar hafa ekki komið í tæp 2 ár til Eyja og því löngu kominn tími á alvöru Sálardansleik í Eyjum. Að sögn Stefáns Hilmarssonar, söngvara og forsprakka sveitarinnar, er tilhlökkun í peyjunum, „enda höfum við átt dyggan áhangendahóp í Eyjum. Og ekki má gleyma að aðal driffjaðrir aðdáendaklúbbs okkar koma úr Eyjum“.