Er það virkilega þannig að bærinn minn treystir sér ekki til að reka leikskólann Sóla lengur? Hvað bull er þetta, af hverju á eitthvert fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu að vera betur til þess fallið að reka skólann heldur en bærinn okkar? Ef þetta snýst um sparnað þá finnst mér það hlægilegt. Um daginn las ég að reiknað væri með að rekstur bæjarins yrði réttum megin við núllið á þessu ári og með auknum loðnukvóta eru enn meiri líkur á góðri stöðu. Til hvers eru þessi peningar okkar ef ekki má eyða þeim í börnin? Ég á börn í leik- og grunnskólum bæjarins og get ekki séð að Vestmannaeyjabær sé að eyða of miklum peningum í þennan málaflokk.