Eyjakonan Sara Sigurðardóttir tók í dag við formennsku Stúdentaráðs Háskóla Íslands en Sara er oddviti Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. Vaka vann meirihluta í Stúdentaráði í kosningum í byrjun febrúar en Sara er í grunnámi við stjórnmálafræðideild. Sara sat í Stúdentaráði á síðasta starfsári.