Ísland tapaði fyrir Japönum í morgun 3:1 en tveir Eyjamenn voru í byrjunarliðinu, þeir Þórarinn Ingi Valdimarsson, sem leikur með ÍBV og Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem leikur með sænska úrvalsdeildarliðinu Norrköping. Þórarinn Ingi komst vel frá leiknum, barðist vel, tapaði varla návígi og átti nokkrar ágætar rispur upp vinstri kantinn.