Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verður frummælandi á opnum fundi Sjálfstæðisfélags Vestmannaeyja, í Ásgarði í dag kl. 15.00. Með honum í för eru þingmennirnir Ólöf Nordal, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Árni Johnsen. Á fundinum verður farið yfir stjórnmálaástandiðí landinu og gefst fundargestum kostur á að leggja fram spurningar.