Stóra upplestrarkeppnin hefur verið haldin í mörg ár og þátt í henni taka nemendur í sjöunda bekk grunnskólanna. Tólf þeirra sem þóttu skara fram úr í Grunnskóla Vestmannaeyja mættu á svið í Bæjarleikhúsinu á mánudaginn fyrir viku síðan. Þar lásu þau upp fyrir dómnefnd sem skar úr um hvaða þrír nemendur keppa fyrir hönd skólans og hver verður varamaður í keppni í upplestri við jafnaldra þeirra í nágrannaskólum á Suðurlandi.