Að vanda var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið en þó fór allt áfallalaust fram. Skemmtanahald helgarinanr fór þokalega fram en eitthvað var þó um óspektir sökum ölvunarástands gesta skemmtistaðanna. Þá var eitthvað um kvartanir til lögreglu vegna hávaða í heimahúsum. Tveir ökumenn voru stöðvaðir um helgina vegna gruns um að þeir væru undir áhrifum áfengis við aksturinn.