Gunnar Már frá í 4-6 vikur
Enn bætist á sjúkralista karlaliðs ÍBV í knattspyrnu því nú er ljóst að miðjumaðurinn sterki Gunnar Már Guðmundsson þarf að fara í aðgerð vegna meiðsla í hné. Eftir aðgerð er áætlað að hann verði frá í 4-6 vikur en fyrir eru á sjúkralistanum þeir Tryggvi Guðmundsson og Andri Ólafsson. Það munar um minna fyrir lið ÍBV en Íslandsmótið hefst 5. maí næstkomandi þegar ÍBV sækir Selfoss heim. Hnéskel Gunnars brotnaði fyrr í vetur en greri vitlaust saman og því þarf hann að fara í aðgerð. Ef brotið hefði gróið rétt, hefði hann verið tilbúinn í fyrsta leik.

Nýjustu fréttir

Kjötsúpukvöld Karlakórsins á föstudag
Ný bók frá Ásmundi Friðrikssyni 
Eyjafréttir og Fretta.is í samstarf
Pysjurnar bæði fleiri og þyngri í ár
Radarhýsi rís á Stórhöfða
Styrkur Eyjafrétta liggur líka hjá lesendum
Vertu velkomið haust
Íþróttamiðstöðin eitt af táknum endurreisnar Eyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.