Í dag, klukkan 16:00 fara fram upptökur í Höllinni á Þjóðlaginu. Lagið er samið af Fjallabróðurnum Halldóri Gunnari Pálssyni, sem einmitt semur einnig þjóðhátíðarlagið í ár. Hann sagði í samtali við Fréttir að hann vilji fá sem flesta Eyjamenn í upptökurnar, líka þá sem telji sig ekki geta sungið, sem er dálítið skemmtilegt.